18júlí

Tvífarar vikunnar

Luis Javier Garcia Sanz  Kyan Douglas

Luís Carlos Almeida da Cunha - NANI  Jai Rodriguez

Haraldur Johannessen Charlie Sheen
18. júlí 2008 klukkan 19:37
hh
Engin athugasemd
18júlí

D E B T

... is a four letter word!
18. júlí 2008 klukkan 19:13
hh
Engin athugasemd
22júní

Tvífarar dagsins.

Scolari - Hackman    
Köbi Kuhn    John Lithgow
Pocahontas   Sergio Ramos 

Val Kilmer sem Jim Morrison   ....... og undirritaður! (að sögn)

22. júní 2008 klukkan 20:09
hh
Engin athugasemd
10júní

Jafnrétti?

Af hverju eru táknmálsfréttir ekki textaðar í sjónvarpinu?
10. júní 2008 klukkan 17:56
hh
1 athugasemd
23apríl

Tvífarar dagsins.

John TerryBono



Avram GrantInspector Dreyfus
23. apríl 2008 klukkan 21:54
hh
Engin athugasemd
16nóvember

Furđulegur heimur

Ég var að fá sendar ansi áhugaverðar greinar úr danska blaðinu Avisen, þar sem reynir á sérstaklega áhugaverð lögfræðileg álitaefni úr opinberu réttarfari. 

Í fyrsta lagi er að geta ölvaða farþegans í leigubifreið, sem var gefinn ölvunarakstur að sök, fyrir að hafa gripið í stýri leigubifreiðarinnar með þeim afleiðingum, að hún ók yfir torg. ,,Þrátt fyrir, að maður sitji ekki undir stýri, þá verður að telja mann ökumann, þegar hann tekur yfir stjórn á ökutækinu,” sagði m.a. varðstjóri á lögreglustöð í Bellahöj í Danmörku. (Sjá http://www.berlingske.dk/article/20071116/danmark/71116010/
 
 – Ekki er ljóst hvort málið fari fyrir dóm.
 

Og svo í annan stað, er að geta nýlegs dóms í Skotlandi, en þar var 51s árs gamall maður ákærður fyrir að hafa haft “mök” við hjól. Robert Stewart var “gripinn” með buxurnar á hælunum, þegar tvær herbergisþernur ætluðu sér inn í hótelherbergi hans til að þrífa, en hann stóð þar á miðju gólfi í ætluðum “samfarahreyfingum” við reiðhjól, íklæddur nærbol einum fata. Báðum þernunum var, eins og von er, mjög brugðið við þetta. Var Stewart álitinn kynferðisbrotamaður. Fyrir dómi var honum þó aðeins gerð refsing fyrir að brjóta gegn blygðunarsemi stúlknanna, þar sem “mök við hjól” eru víst ekki refsiverð.  

Þó er þetta ekki óþekkt; rafvirkinn Karl Watkins var dæmdur í fangelsi fyrir “mök við gangstétt” í Redditch árið 1993.
 

(Sjá :

http://avisen.dk/doemt-sex-cykel-151107.aspx
 

http://www.sundaymail.co.uk/news/tm_headline=accused---of-having-sex-with-his-bike--&method=full&objectid=19347288&siteid=64736-name_page.html
 

http://www.telegraph.co.uk/news/main.jhtml?xml=/news/2007/10/26/nsex126.xml )
 

- Hvað hjólið varðar, hins vegar, liggur ekki fyrir um hvort dömu- eða herrahjól hafi verið að ræða eða jafnvel fyrir yngri aldurshópa, enda virðist aldur hjólsins ekki skipta máli. Ekki liggur heldur fyrir, hvort hjólið hafi verið í eigu Stewarts, eða hvort því hafi verið stolið og verið haldið þarna nauðugu og um væri að ræða kynferðisofbeldi. 

  Sumum spurningum verður seint svarað í þessum efnum, en talið er að Stewart sé keðjureykingamaður.
 
16. nóvember 2007 klukkan 11:02
hh
Engin athugasemd
26september

ASSERTION OF RIGHTS

Officer, please understand -

I refuse to talk to you, other than to identify myself, until I consult with my attorney.

If you are investigating a DUI, I wish to remain silent and refuse to answer any of your questions. I refuse to tell you whether or not I have been drinking. I refuse to tell you how much I may or may not have been drinking and I refuse to tell you where I have been. I refuse to do any and all field sobriety tests and I refuse to do any breath, blood, or urine testing. I refuse to exit my vehicle unless I am under arrest and you tell me why I am under arrest.

I refuse to consent to any search of these premises or any other premises under my control, or in which I may have a possessory, or privacy interest, including my car, my body, or effects. I further refuse to consent to the taking of any portion of my property, or any specimen of my breath, bodily fluids, or tissue, for scientific analysis, without the reasonable opportunity to obtain the advice of my attorney by telephone.

If I am under arrest, I want to consult with my attorney. I wish to invoke and exercise my Miranda rights. If you attempt to question me, I wish to remain silent and I want my lawyer present. If you ignore my exercise of these rights and attempt to procure a waiver, I want to confer with my lawyer prior to any conversations with you. I refuse to participate in any line-up or to perform any physical acts, or to speak or display my person or property at your direction, without first conferring with my lawyer.

If I am taken into custody, removed from my present location, or separated from my property, I request a reasonable opportunity to make arrangements to secure my own property. I do not consent to any search, impoundment, or inventory of my property. I do, hereby waive any claim of liability for loss, theft, or damage against you or your superiors, or any other authority, and agree to hold all harmless therefrom, if I am afforded the reasonable opportunity to arrange for the safekeeping of my own property.

I desire to exercise all my rights guaranteed by the Constitution of the United States and the Constitution of the State of Illinois to be free from your interference with my personal affairs. If I am not under arrest, I want to leave. If I am free to leave, please tell me immediately so that I may go about my business.

26. september 2007 klukkan 12:36
hh
Engin athugasemd
18september

PREAMBLE TO THE UNITED STATES DECLARATION OF INDEPENDENCE

We hold these truths to be self-evident, that all men are created equal, that they are endowed by their Creator with certain unalienable Rights, that among these are Life, Liberty and the pursuit of Happiness.*

That to secure these rights, Governments are instituted among Men, deriving their just powers from the consent of the governed, That whenever any Form of Government becomes destructive of these ends, it is the Right of the People to alter or to abolish it, and to institute new Government, laying its foundation on such principles and organizing its powers in such form, as to them shall seem most likely to effect their Safety and Happiness. Prudence, indeed, will dictate that Governments long established should not be changed for light and transient causes; and accordingly all experience hath shewn, that mankind are more disposed to suffer, while evils are sufferable, than to right themselves by abolishing the forms to which they are accustomed. But when a long train of abuses and usurpations, pursuing invariably the same Object evinces a design to reduce them under absolute Despotism, it is their right, it is their duty, to throw off such Government, and to provide new Guards for their future security.

- Source: wikipedia.org.

* The original hand-written text ended on the phrase "the pursuit of property" rather than "the pursuit of Happiness" but the phrase was changed in subsequent copies in part because it was broader. The latter phrase is used today.

18. september 2007 klukkan 21:03
hh
Engin athugasemd
05ágúst

Carlo Giuliani - in memoriam

Carlo Giuliani Þann 20. júlí 2001 var Carlo Giuliani, 23 ára gamall, skotinn í átökum við lögreglu í mótmælum í Genova á Ítalíu. Hann var í hópi mótmælenda, sem réðust að lögreglubíl, sem í sátu tveir menn. Mótmælendurnir höfðu kastað steinum og fleiri hlutum í bílinn, brotið rúður og ráku m.a. bjálka inn um rúðu bílsins. Carlo greip slökkvitæki og, af myndum að dæma, lítur út fyrir, að hann sé í þann mund að fara að kasta slökkvitækinu inn um afturrúðu Land Rover bifreiðar lögreglunnar, þegar skotið ríður af. Myndir sýna að byssunni hafi verið beint í andlit hans og hneig hann niður eftir að skotið reið af. Mannfjöldinn dreifði sér og lögreglubíllinn keyrði tvisvar yfir hann áður en hann ók á brott. Eftir lá Carlo í götunni með svarta lambhúshettu í eigin blóði.

Ég var heima í úthverfi Genovaborgar, rétt utan við miðbæinn, þegar þetta gerðist, ég var nýbúinn að fá mér kaffi og sat fyrir framan sjónvarpið þegar fréttirnar bárust. Þetta fréttist í raun ekki fyrr en breskur ljósmyndari birti myndirnar, ítölsku fréttastofurnar hafa e.t.v. ekki fengið veður af atburðinum fyrr en þá. Næsta klukkutímann sat ég stjarfur fyrir fram sjónvarpið. Hvernig gat svona gerst? Jú, vissulega voru sumir mótmælendur aðgangsharðir. Svarti múrinn, svokallaði, hafði gengið fram með skemmdarverkastarfsemi og e.t.v. kallaði það á hertari aðgerðir lögreglu. Eða hvað? Myndirnar á skjánum voru jafnan af hópi mótmælenda, sem huldu andlit sitt, svo ekki væri hægt að þekkja þá á mynd og köstuðu steinum og öðru lauslegu í átt að vígalegri lögreglunni, sem marseraði áfram. Lögreglan var við öllu búin, viðbúin eða kannski undirbúin. Hjálmar, hlífar, skildir, kylfur og, já, að sjálfsögðu, táragas og byssur. Mér sýndist af myndunum sem táragas hefði verið á útsölu síðustu vikur og nú væri komið gamlárskvöld og árshátíð lögreglunnar. Það var ekki fyrr en ég sá myndirnar af friðsamlegum mótmælendum barða niður, fólk í blóði sínu fleygt í jörðina og lögregluna hamast á því, sem ég áttaði mig á því hvar ég var. Ég hélt ég væri í vestrænu ríki, einhvers konar réttarríki, sem þó á sér sérstaka stjórnmálasögu. Það er stutt í blóðþorstann, jafnvel hjá þeim, sem hafa tekið að sér að standa vörð um lög og reglur. Maður spyr sig, hvort þetta hafi verið stefna eða hvort allt hafi keyrt um þverbak í þeirri ringulreið, sem átti sér stað? Halda þurfti fólkinu í skefjum og það átti að gera með öllum tiltækum ráðum.

Nóttina þar á eftir gerði lögreglan innrás í Diaz-skólann, þar sem, jú, ég verð að segja, hinir friðsamlegu mótmælendur höfðust við. Þar voru bækistöðvar Genova Social Forum, andmælenda alþjóðavæðingarinnar. Jafnan þegar þeir marseruðu um göturnar, gengu þeir með uppréttar hvítmálaðar hendur og hrópuðu slagorð - ekki meira en það. Vissulega geta þó alltaf verið svartir sauðir inni á milli, en GSF gagnrýndi sjálft harðlega framgöngu Svarta múrsins, svokallaða, og þeirra, sem gripu til skemmdarverka á götunum - í fyrstu aðeins gegn bönkum, alþjóðlegum matvælakeðjum og slíkum fyrirtækjum, en síðar var kveikt í bílum, ruslatunnum og jafnvel bensínstöðvum. Þessa nótt réðist lögreglan inn í skólann og barði fólk. Fólk var borið út ólað niður jafnvel þó það lægi enn í svefnpokunum sínum. Þegar myndirnar af húsnæðinu daginn eftir eru skoðaðar, eru blóðsletturnar og pollarnir til vitnis um það, að þarna fór ekki fram friðsamleg yfirheyrsla. En hver var ástæða innrásarinnar? Jú, í fyrstu var sagt að það hefði verið til að leita að Svarta múrnum, sem talið var að hefðist við þarna. Í raun voru þarna saman komnir margir þeirra útlendinga, sem vildu mótmæla friðsamlega og höfðu engan annan stað til að sofa á. Svarti múrinn var líklegast að mestu leyti til Ítalir, þó enginn geti getið sér til um það. Amnesty samtökin hafa lengi reynt að berjast fyrir því, að opinber rannsókn fari fram á atburðinum, sömuleiðis Genova Legal Forum, sem stofnsett voru fyrir G8 fundinn, til að fást við þau lagalegu vandamál, sem fyrirsjáanleg voru. Það endurspeglar e.t.v. trú þeirra á meðalhófi ítölsku lögreglunnar. Enn, sem komið er, hefur engin rannsókn farið fram. Þvert á móti hefur CAT-nefnd Sameinuðu þjóðanna (Convention against Torture and Other Cruel, Inhuman or Degrading Treatment or Punishment) lagt blessun sína á aðgerðirnar í Diaz-skólanum, þar sem þær voru nauðsynlegar til að kanna hvort þar leyndust vopn.

En hvað var lagt hald á? Jú, lögreglan segist hafa fundið tvær eldsprengjur eða efni, sem hægt væri að nota til að búa til eldsprengjur. (Samkvæmt minni uppskrift gæti ég gert hana með kókflösku, rauðspritti eða kveikjarabensíni og smá klósettpappír eða óhreinum nærbuxum.) Hins vegar hefur verið reynt að sækja lögreglumenn til saka, sem þátt tóku í aðgerðunum, fyrir að koma fyrir sönnunargögnum og fyrir rangan framburð, án árangurs. Það, sem hins vegar var lagt hald á - og/eða eyðilagt, voru myndavélar, af hvaða tegund, sem var, upptökutæki, af hvaða gerð, sem var, tölvur - ef þær voru þá ekki bara eyðilagðar á staðnum, og önnur gögn, skrifleg sem önnur, sem fjölluðu á einhvern hátt um atburði liðinna daga, framgöngu lögreglunnar, fjölda slasaðra og hverjir mundu hugsanlega kæra lögregluna í kjölfarið. Svo virðist sem enginn vildi hafa vitni eða sönnunargögn um það, sem átti sér stað í Genova dagana 19.-21. júlí 2001.

Enginn var sakfelldur fyrir framgönguna við Diaz-skólann - og ég er ekki einu sinni viss, hvort ákæran hafi náð fram að ganga. Svona svipað með ákæruna á hendur Mario Placanica, 20 ára gamla sikileyska lögreglumanninum, sem hélt á byssunni, sem skotið hljóp úr og lenti í höfði Carlo Giuliani. Já, lenti! Þegar til ákæru kom á hendur Mario Placanica, tók dómarinn til við að rannsaka málið. Að sjálfsögðu var vörnin byggð á sjálfsvörn, en þó var sagt, að um varnarskot hafi verið að ræða og byssunni hafi verið beint upp á við, en ekki í átt að fólkinu, sem stóð aftan við bílinn - jafnvel þótt myndir benda til annars. Svo virðist sem byssukúlan hafi hæft stein, sem kastað var og endurkastast þaðan í höfuð Carlos. Það var og niðurstaðan. Fallið var frá saksókn á hendur Mario Placanica.

Fjöldi samtaka, jafnvel ríkisstjórna - m.a. má minna á loforð nokkurra þeirra, sem sátu G8 fundinn, - hafa farið fram á rannsókn á atburðunum. Margir þeirra, sem slasaðir voru, meðan á ráðstefnunni stóð, voru blaðamen og hafa Alþjóðlegu blaðamannasamtökin þrábeðið um rannsókn á atburðunum í Genova 2001. Amnesty samtökin hafa m.a. gefið út heimildarmynd með þeim myndbrotum, sem varðveitzt hafa og fleiri hafa verið gerðar, m.a. ,,Niente da Archiviare," ,,A Different World is Possible" o.fl. Hver veit hverju þessi vinna skilar? Mótmælin halda áfram og ofbeldið heldur áfram.

Strax og Carlo lá í götunni og bifreiðin hafði ekið tvisvar yfir hann, þustu að fleiri lögreglumenn og mynduðu skjaldborg um hann þar, sem hann lá. Vinur hans hrópaði í átt að lögreglunni, sem gerði sig líklega til að hlaupa á eftir honum með kylfunum: ,,Morðingjar!" - og svarið kom: ,,Þú ert morðingi! Þú drapst hann með steininum þínum!" Þegar læknarnir komu, sló hjarta hans enn. Ekki lengi þó.

Piazza Carlo GiulianiMikil umræða hefur átt sér stað um atburðina og sérstaklega dauða Carlos. Hann hefur verið kallaður anarkisti, götustrákur, einn af Svartamúrsgenginu og jafnvel forsætisráðherra Ítalíu gaf í skyn að hann væri ,,ragazzo della Piazza delle Erbe" - ,,strákur af kryddtorginu," en það er lítið torg þar sem ungt fólk kemur saman um helgar. Hvað það hefur átt að þýða er óskiljanlegt, en spurning er hvort annað hafi búið þar að baki. Hvernig gat Berlusconi svo sem vitað, hvað Carlo gerði um helgar? Ítölsk yfirvöld eiga sér svarta sögu, þegar kemur að ofbeldi gegn eigin borgurum og réttlætingu á aðgerðum. Ætli fólk viti af sprengjuöldinni á Ítalíu 1968? Blöð vestanhafs hafa sérstaklega gengið hart fram í því að draga upp neikvæða mynd af Carlo. Vinstrisinnaðir og anarkistar hafa svo gert úr honum píslarvott.

Hvað sem öðru líður, þá verður hans ævinlega minnst sem fórnarlambs ofbeldis. Hann verður táknmynd þess, hvað ofbeldið getur gengið langt. Menn geta rætt um Svarta múrinn og atburði dagsins, skemmdarverk, íkveikjur og annað því um líkt. Það réttlætir þó ekki blóðtökuna. Látum dauða hans verða okkar vegastein og von um betri heim - eins og faðir hans orðaði það: ,,Reynum, í nafni Carlos, að sameinast gegn ofbeldi."

Carlo Giuliani - 14.03.78 - 20.07.01
Lengi lifi minning hans!
05. ágúst 2006 klukkan 20:56
hh
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

korn . . .

"I'd rather my values be true,
than truth be my value . . ."
- Gregory Corso

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...